73. fundur
fjárlaganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 3. júní 2015 kl. 08:00


Mættir:

Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 08:00
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) 1. varaformaður, kl. 08:15
Oddný G. Harðardóttir (OH) 2. varaformaður, kl. 08:00
Anna María Elíasdóttir (AME) fyrir Ásmund Einar Daðason (ÁsmD), kl. 08:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 08:09
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 08:00
Fjóla Hrund Björnsdóttir (FHB) fyrir Karl Garðarsson (KG), kl. 08:00
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 08:00
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 08:22

Jón Þór Ólafsson áheyrnarfulltrúi var fjarverandi. Haraldur Benediktsson vék af fundi kl. 8:58 og kom Unnur Brá Konráðsdóttir þá inn á fundinn sem varamaður hans.

Nefndarritari: Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 206. mál - opinber fjármál Kl. 08:00
Fjármála- og efnahagsráðuneyti: Þórhallur Arason, Björn Rögnvaldsson og Álfrún Tryggvadóttir.
Farið var yfir minnisblað ráðuneytisins dags. 3. júní 2015 um tillögu að breytingu á 30. og 57. gr. frumvarps til laga um opinber fjármál.
Ríkisendurskoðun: Sveinn Arason og Jón Loftur Björnsson. Farið var yfir fyrrgreint minnisblað ráðuneytisins um tillögu að breytingu á 30. og 57. gr. frumvarps til laga um opinber fjármál. Ríkisendurskoðun lagði fram punkta um tillögurnar.

2) Eftirlit með B- og E-hluta fyrirtækjum Kl. 09:50
Lagt fram bréf Ríkisútvarpsins ohf. dagsett 28. maí 2015 um upplýsingagjöf stofnunarinnar til fjárlaganefndar Alþingis og meðferð trúnaðarupplýsinga.

3) Önnur mál Kl. 09:51
Fleira var ekki gert.

4) Fundargerðir fjárlaganefndar á 144. þingi Kl. 09:52
Fundargerð 72. fundar samþykkt.

Fundi slitið kl. 09:53