64. fundur
fjárlaganefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 15. maí 2019 kl. 09:04


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:04
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:04
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 09:38
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:06
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:14
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:14
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:04
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:04
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:04
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 09:04

Páll Magnússon vék af fundi kl. 11:36. Inga Sæland vék af fundi kl. 11:55 til að fara á annan fund hjá Alþingi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 750. mál - fjármálaáætlun 2020--2024 Kl. 09:04
Til fundarins kom Henný Hinz frá Alþýðusambandi Íslands.
Kl. 10:05. Eva Björk Harðardóttir og Bjarni Guðmundsson frá Samtökum sveitarfélaga á Suðurlandi.
Kl. 11:00 Ásdís Kristjánsdóttir og Tryggvi Másson frá Samtökum atvinnulífsins. Gestirnir fóru yfir umsagnir sínar og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þeirra.

2) Önnur mál Kl. 12:05
Rætt var um vinnuna sem framundan er við afgreiðslu fjármálaáætlunar. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 12:08
Fundargerð 63. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 12:09