4. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 25. september 2019
kl. 09:01
Mættir:
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) formaður, kl. 09:01Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:01
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:01
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:01
Inga Sæland (IngS), kl. 09:01
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:01
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:01
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:01
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:01
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:01
Brynjar Níelsson vék af fundi kl. 09:04.
Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:47
Fundargerð 3. fundar var samþykkt.
2) Yfirstjórn löggæslumála Kl. 09:01
Nefndin fjallaði um aðkomu nefndarinnar að málinu út frá eftirlitshlutverki nefndarinnar gagnvart ráðherra og skörun við eftirlitshlutverk allsherjar- og menntamálanefndar, sbr. 2. mgr. 8. tölul. 13. gr. laga um þingsköp Alþingis og 26. gr. sömu laga. Ákvörðun um dagskrár funda var einnig rædd.
Á fund nefndarinnar komu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra, Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri og Ragna Bjarnadóttir skrifstofustjóri frá dómsmálaráðuneyti. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
3) 125. mál - ríkisendurskoðandi og endurskoðun ríkisreikninga Kl. 09:46
Nefndin samþykkti að Þorsteinn Sæmundsson yrði framsögumaður málsins. Samþykkt að senda til umsagnar með 3 vikna fresti.
4) Önnur mál Kl. 09:46
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 09:48