23. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 4. desember 2019 kl. 09:15


Mætt:

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) formaður, kl. 09:15
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:26
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:15
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:15
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:15
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:15
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:15
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:42
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:15

Kolbeinn Óttarsson Proppé vék af fundi kl. 9:50 vegna annars fundar.

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:15
Frestað.

2) 202. mál - þingsköp Alþingis Kl. 09:15
Á fundinn komu Guðmundur D. Haraldsson og Kristján Gunnarsson frá Öldu - félagi um sjálfbærni og lýðræði og gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið ásamt því að svara spurningum nefndarmanna.

3) Staða mála Kl. 10:15
Formaður fór yfir stöðu mála sem nefndin hefur til umfjöllunar og nefndin ræddi málin.

4) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/631 frá 17. apríl 2019 um að setja staðla um koltvísýringslosun nýrra fólksbifreiða og nýrra léttra atvinnuökutækja og um niðurfellingu reglugerða (EB) nr. 443/2009 og (ESB) nr. 510/2011 Kl. 10:44
Samþykkt að fresta afgreiðslu málsins.

5) Önnur mál Kl. 10:45
Hlé var gert á fundi 10:02 - 10:15.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:45