60. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, miðvikudaginn 20. maí 2020 kl. 09:30


Mætt:

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) formaður, kl. 09:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:30
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:30
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:30
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:30
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:30
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:30
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:30
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:30

Brynjar Níelsson var fjarverandi. Líneik Anna Sævarsdóttir vék af fundi kl. 10:58.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Frestað.

2) Ríkislögreglustjóri - Fjárreiður, stjórnsýsla og stjórnarhættir. Skýrsla til Alþingis. Kl. 09:30
09:30 Á fund nefndarinnar kom Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra. Ráðherra gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

10:26 Þá kom á fund nefndarinnar Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu. Gerði hún grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 523. mál - varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands Kl. 10:48
Nefndin ræddi málið.

4) Önnur mál Kl. 11:07
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:07