62. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, mánudaginn 25. maí 2020 kl. 09:34


Mætt:

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) formaður, kl. 09:34
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:34
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:34
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:34
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 10:02
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:34
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:34
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:34
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:34

Kolbeinn Óttarsson Proppé boðaði seinkun. Þórunn Egilsdóttir vék af fundi 10:50 vegna annarra þingstarfa. Líneik Anna Sævarsdóttir vék af fundi 10:54 vegna annarra þingstarfa. Kolbeinn Óttarsson Proppé vék af fundi 10:57 vegna annarra þingstarfa. Brynjar Níelsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:34
Fundargerðir 61. og 62. fundar voru samþykktar.

2) 644. mál - upplýsingalög Kl. 09:39
Á fund nefndarinnar kom Svanhildur Bogadóttir frá Borgarskjalasafni. Gerði hún grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Lindarhvoll ehf. Framkvæmd samnings við umsýslu, fullnustu og sölu á stöðugleikaeignum. Skýrsla til Alþingis Kl. 09:58
Á fund nefndarinnar kom Sigurður Þórðarson. Gerði hann grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Þá ræddi nefndin málið.

4) Starfið framundan Kl. 10:54
Nefndin ræddi starfið framundan.

5) Önnur mál Kl. 10:51
Kolbeinn Óttarsson Proppé gerði grein fyrir bókun við fundargerð 62. fundar.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:58