39. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 2. mars 2021 kl. 09:01


Mætt:

Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) formaður, kl. 09:01
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 10:12
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:01
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:01
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:01
Karl Gauti Hjaltason (KGH) fyrir Þorstein Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:01
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:01
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:01
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:01
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:01

Líneik Anna Sævarsdóttir boðaði seinkun.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:01
Dagskrárlið frestað.

2) 466. mál - stjórnarskrá lýðveldisins Íslands Kl. 09:01
Á fund nefndarinnar mætti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Á fund nefndarinnar mætti einnig Aagot Óskarsdóttir sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Samskipti dómsmálaráðherra og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn Kl. 10:35
Á fund nefndarinnar mættu Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, og Margrét Kristín Pálsdóttir frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 11:15
Fleira var ekki gert.

Hlé var gert á fundi frá kl. 09:28-09:35 og 10:29-10:35.

Fundi slitið kl. 11:15