57. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 12. maí 2021 kl. 09:04


Mætt:

Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) formaður, kl. 09:15
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:04
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:04
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:04
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:04
Hjálmar Bogi Hafliðason (HBH), kl. 09:04
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:04
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:04
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:04

Jón Þór Ólafsson boðaði seinkun.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:05
Dagskrárlið frestað.

2) 647. mál - kosningar til Alþingis Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar mætti Erla S. Árnadóttir frá yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis norður. Gerði hún grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Breyting á 5. mgr. 43. gr. stjórnsýslulaga Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar mættu Hafdís Ólafsdóttir skrifstofustjóri og Oddur Þorri Viðarsson. Gerðu þau grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Þá ræddi nefndin málið.

4) 663. mál - þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður Kl. 09:43
Dagskrárlið frestað.

5) 468. mál - þingsköp Alþingis og réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins Kl. 09:43
Nefndin ræddi málið.

6) Önnur mál Kl. 10:08
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:08