18. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 4. apríl 2017 kl. 10:00


Mættir:

Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 10:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NF) 2. varaformaður, kl. 10:00
Bessí Jóhannsdóttir (BessíJ) fyrir Brynjar Níelsson (BN), kl. 10:00
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 10:00
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 10:00
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 10:00
Katla Hólm Þórhildardóttir (KÞ) fyrir Birgittu Jónsdóttur (BirgJ), kl. 10:00
Lilja Alfreðsdóttir (LA), kl. 10:00
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 10:00

Katla Hólm Þórhildardóttir vék af fundi kl. 10:30 og Smári McCarthy kom í hennar stað.
Jón Þór Ólafsson vék af fundi kl. 11:20 vegna annars fundar.

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:00
Frestað.

2) Stjórnun og rekstur Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands. Skýrsla um eftirfylgni Kl. 10:00
Á fundinn komu Viðar Helgason og Ingunn Þorsteinsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Sveinn Arason og Þórir Óskarsson frá Ríkisendurskoðun. Fulltrúar ráðuneytisins gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og gestir svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um rannsókn á erlendri þátttöku í kaupum á 45,8% eignarhlut í Búnaðarbanka Íslands hf. o.fl. Kl. 10:24
Á fundinn komu Unnur Gunnarsdóttir, Ragnar Hafliðason og Björk Sigurgísladóttir frá Fjármálaeftirlitinu og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Tillaga Jón Steindórs Valdimarssonar um að hann verði framsögumaður málsins var samþykkt.

4) Önnur mál Kl. 11:41
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:42