28. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 17. maí 2017 kl. 15:05


Mættir:

Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 15:05
Njáll Trausti Friðbertsson (NF) 2. varaformaður, kl. 15:05
Birgir Ármannsson (BÁ) fyrir Brynjar Níelsson (BN), kl. 15:05
Birgitta Jónsdóttir (BirgJ), kl. 15:05
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 15:05
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 15:05
Lilja Alfreðsdóttir (LA), kl. 15:05
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 15:05
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 15:05
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) fyrir Harald Benediktsson (HarB), kl. 15:05

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:05
Frestað.

2) Áheyrnaraðild. Kl. 15:05
Beiðni þingflokks Bjartrar framtíðar um áheyrnaraðild, Nicole Leigh Mosty, að málinu samþykkt.

3) Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um rannsókn á erlendri þátttöku í kaupum á 45,8% eignarhlut í Búnaðarbanka Íslands hf. o.fl. Kl. 15:07 - Opið fréttamönnum
Nefndin ræddi málsmeðferð.

Gert var hlé á fundi frá kl 15:15 til 15:40 þar til unnt var að opna fundinn fyrir fjölmiðlum.

Á fundinn kom Ólafur Ólafsson og gerði grein fyrir afstöðu sinni til skýrslunnar og sjónarmiðum við málið ásamt því að svara fjölmörgum spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 17:31
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 17:00