22. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 2. desember 2019
kl. 09:31
Mætt:
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) formaður, kl. 09:31Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:31
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:31
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:31
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:31
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:31
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:31
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:31
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:31
Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:31
Frestað.
09:32 Á fund nefndarinnar komu Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri og Ragna Bjarnadóttir skrifstofustjóri frá dómsmálaráðuneyti og Guðrún Þorleifsdóttir skrifstofustjóri og Erna Hjaltested frá fjármála- og efnahagsráðuneyti. Gestir kynntu efni skýrslu dómsmálaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra um aðdraganda og ástæður þess að Ísland hafnaði á „gráa lista“ FATF og svöruðu spurningum nefndarmanna.
10:38 Nefndin ræddi málið.
Nefndin ræddi málið.
4) Önnur mál Kl. 10:51
Nefndin ræddi tillögur um gestakomur í 139. máli.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:51