33. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 150. löggjafarþingi
heimsókn til Dómstólasýslunnar fimmtudaginn 16. janúar 2020 kl. 13:30


Mætt:

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) formaður, kl. 13:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 13:30
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 13:30
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 13:30
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 13:30

Brynjar Níelsson, Óli Björn Kárason, Þorsteinn Sæmundsson og Þórarinn Ingi Pétursson boðuðu forföll.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Heimsókn til Dómstólasýslunnar Kl. 13:30
Nefndin fór í heimsókn til Dómstólasýslunnar og fékk kynningu á starfsemi stofnunarinnar. Benedikt Bogason, Ólöf Finnsdóttir og Íris Elma Guðmann tóku á móti nefndinni.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:00