41. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 24. febrúar 2020 kl. 09:36


Mætt:

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) formaður, kl. 09:36
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:36
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:36
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:36
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:36
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:36
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:36

Líneik Anna Sævarsdóttir boðaði forföll. Þorsteinn Sæmundsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:36
Fundargerðir 38., 39. og 40. fundar voru samþykktar.

2) Vatnajökulsþjóðgarður. Skýrsla til Alþingis Kl. 09:38
Á fund nefndarinnar komu Jón Geir Pétursson skrifstofustjóri og Stefán Guðmundsson skrifstofustjóri frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Magnús Guðmundsson, Matthildur Unnur Þorsteinsdóttir, Snorri Ingimarsson og Vilhjálmur Árnason frá Vatnajökulsþjóðgarði.

Gestir gerðu grein fyrir málinu og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 523. mál - varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds í Stjórnarráði Íslands Kl. 10:47
Á fund nefndarinnar kom Magnús M. Norðdahl frá Alþýðusambandi Íslands. Gerði hann grein fyrir umsögn Alþýðusambandsins um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) 325. mál - þjóðfáni Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið Kl. 10:52
Frestað.

5) Önnur mál Kl. 10:53
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:53