15. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 23. nóvember 2020 kl. 14:50


Mætt:

Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) formaður, kl. 14:50
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 14:50
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 14:50
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 14:50
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 14:50
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 14:50
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 14:50
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 14:50

Brynjar Níelsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Prófun kjörbréfs Kl. 14:50
Á fundinum var prófað kjörbréf Sunnu Rósar Víðisdóttur, sem hlaut kosningu sem 3. varaþingmaður Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður við alþingiskosningarnar 28. október 2017. Ekki voru gerðar athugasemdir við kjörbréfið og viðstaddir nefndarmenn einhuga um að mæla með samþykkt þess.

2) Önnur mál Kl. 15:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:00