28. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 20. janúar 2021 kl. 09:00


Mætt:

Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) formaður, kl. 09:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:00
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:00
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:00
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:00
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:00
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:00

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 27. fundar var samþykkt.

2) 130. mál - Þjóðhagsstofnun Kl. 09:01
Á fund nefndarinnar mætti Ólafur Hjálmarsson frá Hagstofu Íslands sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 339. mál - kosningalög Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar mættu Guðni Rúnar Gíslason, Haraldur Kristinsson, Helga Bogadóttir og Indriði Björn Ármannsson frá Þjóðskrá Íslands. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Þá ræddi nefndin málið.

4) 99. mál - Kosningar til Alþingis Kl. 09:59
Á fund nefndarinnar mættu Guðni Rúnar Gíslason, Haraldur Kristinsson, Helga Bogadóttir og Indriði Björn Ármannsson frá Þjóðskrá Íslands. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) Starfið framundan Kl. 10:10
Nefndin ræddi starfið framundan.

6) Önnur mál Kl. 10:31
Fleira var ekki gert.

Hlé var gert á fundi frá kl. 09:23-09:30.

Fundi slitið kl. 10:32