29. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 27. janúar 2021 kl. 09:02


Mætt:

Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) formaður, kl. 09:02
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:02
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:02
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:02
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:02
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:02
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:02
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:02
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:02

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:02
Fundargerð 28. fundar var samþykkt.

2) 339. mál - kosningalög Kl. 09:02
Á fund nefndarinnar mættu Helga Björk Laxdal, Hildur Lilliendahl Viggósdóttir, Bjarni Þóroddsson og Páll Hilmarsson frá Reykjavíkurborg. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Á fund nefndarinnar mættu einnig Helga Eymundsdóttir og Jón Stefán Hjaltalín frá kjörstjórn Akureyrarbæjar. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Að lokum mættu á fund nefndarinnar Gísli M. Auðbergsson, Agnar Bóasson og Kristjana Mekkín Guðnadóttir frá yfirkjörstjórn Fjarðabyggðar. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 10:50
Fleira var ekki gert.

Hlé var gert á fundi kl. 09:44 til 09:48 og kl. 10:11 til 10:21.

Fundi slitið kl. 10:50