31. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 2. febrúar 2021 kl. 09:30


Mætt:

Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) formaður, kl. 09:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:30
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:30
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:30
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:30
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:30
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:30
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:30
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:30
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:30

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:31
Fundargerð 30. fundar var samþykkt.

2) 339. mál - kosningalög Kl. 09:31
Á fund nefndarinnar mætti Ingvar P. Guðbjörnsson frá Sjálfstæðisflokkurinn sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Á fund nefndarinnar mættu einnig Eyjólfur Kolbeinsson og Helga Kristjánsdóttir frá kjörstjórn Hveragerðis. Gerðu þau grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Á fund nefndarinnar mætti jafnframt Bjarni Höskuldsson frá kjörstjórn Þingeyjarsveitar sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Að lokum mættu á fund nefndarinnar Snorri Tómasson, Pétur Steinn Guðmundsson og Ingibjörg Ingvadóttir frá kjörstjórn Kópavogsbæjar. Gerðu þau grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 10:41
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:41