36. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 22. febrúar 2021 kl. 09:00


Mætt:

Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) formaður, kl. 09:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:00
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:00
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:00
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:00
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:00
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:00
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:00

Líneik Anna Sævarsdóttir vék af fundi kl. 09:58

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 35. fundar var samþykkt.

2) 339. mál - kosningalög Kl. 09:02
Á fund nefndarinnar mættu Þórhallur Vilhjálmsson og Laufey Helga Guðmundsdóttir frá lagaskrifstofu Alþingis og Þórir Haraldsson fulltrúi landskjörstjórnar í starfshópi um endurskoðun kosningalaga. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Álit umboðsmanns vegna stöðu einstaklinga sem ekki eru mæltir á íslensku í samskiptum þeirra við stjórnvöld Kl. 10:10
Dagskrárlið var frestað.

4) 188. mál - stjórnarskipunarlög Kl. 09:01
Tillaga um að senda málið til umsagnar var samþykkt.

Tillaga um að Andrés Ingi Jónsson verði framsögumaður málsins var samþykkt.

5) Önnur mál Kl. 10:10
Tillaga formanns um að Kolbeinn Óttarsson Proppé verði framsögumaður málsins um viðskilnað hernaðarmannvirkja á Heiðarfjalli í Langanesbyggð var samþykkt. Þorsteinn Sæmundsson lagði til að fulltrúar utanríkisráðuneytis kæmu á fund nefndarinnar vegna málsins.

Fleira var ekki gert.

Hlé var gert á fundi frá kl. 09:58-10:10.

Fundi slitið kl. 10:13