43. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 15. mars 2021 kl. 09:01


Mætt:

Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) formaður, kl. 09:01
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:01
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:01
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:01
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:01
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:01
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:01
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:01
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:50
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:01

Þorsteinn Sæmundsson boðaði seinkun.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:01
Fundargerð 42. fundar var samþykkt.

2) 466. mál - stjórnarskrá lýðveldisins Íslands Kl. 09:02
Á fund nefndarinnar mættu Heiðrún Björk Gísladóttir frá Samtökum atvinnulífsins, Jóhannes Þór Skúlason frá Samtökum ferðaþjónustunnar og Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Heiðmar Guðmundsson frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Á fund nefndarinnar mættu einnig Sævar Finnbogason og Guðmundur D. Haraldsson frá Öldu - félagi um lýðræði og sjálfbærni. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 496. mál - kosningar til Alþingis Kl. 10:41
Tillaga um að Jón Þór Ólafsson verði framsögumaður málsins var samþykkt.

Tillaga um að senda málið til umsagnar var samþykkt.

4) Samskipti dómsmálaráðherra og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn á meintum brotum á sóttvarnalögum Kl. 10:41
Nefndin ræddi málið.

Formaður lagði til að nefndin gerði hlé á umfjöllun sinni um málið. Enginn hreyfði andmælum og var tillagan samþykkt.

5) Önnur mál Kl. 10:47
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:47