53. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 4. maí 2021 kl. 09:01


Mætt:

Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) formaður, kl. 09:01
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:01
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:01
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:01
Hjálmar Bogi Hafliðason (HBH) fyrir Þórarin Inga Pétursson (ÞórP), kl. 09:01
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:01
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:01
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:01

Brynjar Níelsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:01
Fundargerð 52. fundar var samþykkt.

2) 469. mál - þingsköp Alþingis Kl. 09:08
Á fund nefndarinnar mætti Atli Þór Fanndal frá Íslandsdeild Transparency International sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Heiðarfjall í Langanesbyggð - barátta landeigenda við að fá mengandi úrgang frá ratsjárstöð bandaríska hersins fjarlægðan Kl. 09:05
Nefndin fjallaði um málið.

Nefndin ákvað að flytja tillögu til þingsályktunar um hreinsun Heiðarfjalls.

4) 339. mál - kosningalög Kl. 09:23
Nefndin fjallaði um málið.

5) Önnur mál Kl. 09:42
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:42