76. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 151. löggjafarþingi
haldinn í Fjarfundur, mánudaginn 30. ágúst 2021 kl. 10:05
Opinn fundur


Mætt:

Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) formaður, kl. 10:05
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 10:05
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 10:05
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 10:05
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 10:05
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 10:05

Brynjar Níelsson, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Þorsteinn Sæmundsson og Þórarinn Ingi Pétursson boðuðu forföll.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Verklag nefndar um eftirlit með lögreglu Kl. 10:05
Á fund nefndarinnar mættu Stefán Örn Arnarson frá Landssambandi lögreglumanna og Helgi Valberg Jensson frá Ríkislögreglustjóra. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Á fund nefndarinnar mættu einnig Helga Sigríður Þórhallsdóttir og Vigdís Eva Líndal frá Persónuvernd. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Að lokum mættu á fund nefndarinnar Skúli Þór Gunnsteinsson, Kristín Edwald, Þorbjörg Inga Jónsdóttir og Margrét Lilja Hjaltadóttir frá nefnd um eftirlit með lögreglu. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:28

Upptaka af fundinum