10. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 152. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 19. janúar 2022 kl. 09:01


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:01
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 09:01
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) 2. varaformaður, kl. 09:01
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 09:01
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:01
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:01
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:01
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 09:01
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:01

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:01
Fundargerð 9. fundar var samþykkt.

2) 167. mál - breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands Kl. 09:02
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, Bryndísi Hlöðversdóttur ráðuneytisstjóra og Ágúst Geir Ágústsson skrifstofustjóra frá forsætisráðuneytinu.

3) Önnur mál Kl. 10:50
Nefndin fjallaði um starfið framundan.

Nefndin samþykkti að óska eftir afriti af skriflegum erindum milli forsætisráðherra og Íslenskrar erfðagreiningar í tengslum við skimanir fyrirtækisins fyrir SARS-CoV-2-veirunni og mótefnum við henni sem fram fóru árið 2020, skv. 24. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis, sbr. 51. gr. þingskapa.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00