28. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 21. mars 2022 kl. 12:00


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 12:00
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 12:00
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 12:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) fyrir Steinunni Þóru Árnadóttur (SÞÁ), kl. 12:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 12:00
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 12:00

Sigmar Guðmundsson og Ásthildur Lóa Þórsdóttir voru fjarverandi.
Hildur Sverrisdóttir boðaði forföll.


Bókað:

1) Könnun á kosningu varaþingmanns og kjörgengi Kl. 12:00
Á fundinum var könnuð tilkynning landskjörstjórnar um kosningu og kjörgengi Þorgríms Sigmundssonar, sem hlaut kosningu sem 2. varaþingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningunum 25. september 2021. Tilkynningin er gefin út í samræmi við 113. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Ekki voru gerðar athugasemdir við tilkynninguna og var nefndin einhuga um að mæla með staðfestingu kosningar Þorgríms Sigmundssonar.

2) Önnur mál Kl. 12:03
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:06