29. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, þriðjudaginn 22. mars 2022 kl. 13:18


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 13:18
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 13:18
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 13:18
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 13:18

Sigmar Guðmundsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir voru fjarverandi.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Könnun á kosningu varaþingmanns og kjörgengi Kl. 13:15
Á fundinum var könnuð tilkynning landskjörstjórnar um kosningu og
kjörgengi Helgu Þórðardóttur, sem hlaut kosningu sem 2.
varaþingmaður á lista Flokks fólksins í Reykjarvíkurkjördæmi suður í
alþingiskosningunum 25. september 2021. Tilkynningin er gefin út í
samræmi við 113. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Ekki voru gerðar
athugasemdir við tilkynninguna og var nefndin einhuga um að mæla
með staðfestingu kosningar Helgu Þórðardóttur.

2) Önnur mál Kl. 13:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:20