35. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 25. apríl 2022 kl. 09:31


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:31
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) 2. varaformaður, kl. 09:31
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 09:31
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:31
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:31
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:31
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 09:31
Orri Páll Jóhannsson (OPJ) fyrir Steinunni Þóru Árnadóttur (SÞÁ), kl. 09:31

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir boðaði forföll.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:31
Fundargerðir 33. og 34. fundar voru samþykktar.

2) Skýrsla Ríkisendurskoðunar - Geðheilbrigðisþjónusta (stefna - skipulag - kostanður - árangur) Stjórnsýsluúttekt Kl. 09:31
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðmund Björgvin Helgason, starfandi ríkisendurskoðanda, Jarþrúði Hönnu Jóhannsdóttur, Elísabetu Stefánsdóttur og Berglindi Eygló Jónsdóttur frá Ríkisendurskoðun.

3) Frumkvæðisathuganir - næstu verkefni nefndarinnar Kl. 10:31
Nefndin fjallaði um málið.

4) Önnur mál Kl. 10:51
Nefndin ræddi um kosningalög nr. 112/2021.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:56