23. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 19. janúar 2012 kl. 08:40


Mættir:

Valgerður Bjarnadóttir (VBj) formaður, kl. 08:40
Álfheiður Ingadóttir (ÁI), kl. 08:40
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 08:48
Jónína Rós Guðmundsdóttir (JRG), kl. 08:40
Lúðvík Geirsson (LGeir), kl. 08:40
Margrét Tryggvadóttir (MT), kl. 08:40
Ólöf Nordal (ÓN), kl. 08:40
Róbert Marshall (RM), kl. 08:40
Vigdís Hauksdóttir (VigH), kl. 08:41

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð síðasta fundar. Kl. 08:40
Samþykkt.


2) 3. mál - tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá Íslands Kl. 08:40 - Opið fréttamönnum
Nefndin fjallaði um meðferð málsins.

Kl. 09:00
Á fundinn komu Aðalheiður Jóhannsdóttir frá Háskóla Íslands og Aagot Óskarsdóttir frá Háskólanum á Bifröst. Þær gerðu grein fyrir afstöðu til tillagna stjórnlagaráðs sem varða umhverfisrétt o.fl., II kafli, 32. - 36. gr. og svöruðu spurningum nefndarmanna.





3) 6. mál - meðferð frumvarps stjórnlagaráðs til stjórnarskipunarlaga Kl. 10:21
Sjá lið 2.


4) 43. mál - stjórnarskipunarlög Kl. 10:21
Sjá lið 2.


5) Önnur mál. Kl. 10:21
Fleira var ekki gert.



Fundi slitið kl. 10:21