6. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 141. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 9. október 2012
kl. 09:02
Mættir:
Valgerður Bjarnadóttir (VBj) formaður, kl. 09:02Álfheiður Ingadóttir (ÁI), kl. 09:02
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 10:33
Lúðvík Geirsson (LGeir), kl. 09:02
Margrét Tryggvadóttir (MT), kl. 09:02
Pétur H. Blöndal (PHB) fyrir ÓN, kl. 09:02
Róbert Marshall (RM), kl. 09:05
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII), kl. 09:02
Vigdís Hauksdóttir (VigH), kl. 09:02
Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir
Bókað:
1) Fundargerð. Kl. 09:02
Fundargerðir 4. og 5. samþykktar.
2) 180. mál - kosningar til Alþingis og kosningar til sveitarstjórna Kl. 09:04
Á fundinn komu Hermann Sæmundsson og Skúli Guðmundsson frá innanríkisráðuneyti gerðu grein fyrir efni frumvarpsins og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Þá kom Freyja Haraldsdóttir frá NPA-miðstöðinni svf. á fundinn og gerði grein fyrir umsögn miðstöðvarinnar um málið og svaraði spurningum nefndarmanna. Þeir voru viðstaddur komu annarra gesta vegna málsins.
Næst komu Kristinn Halldór Einarsson, Ólafur Þór Jónsson og Páll Rúnar M. Kristjánsson frá Blindrafélaginu, samtökum blindra og sjónskertra á Íslandi, og gerðu grein fyrir umsögn um málið ásamt því að svara spurningum nefndarmanna.
Næstur kom Karl Gauti Hjaltason formaður yfirkjörstjórnar Suðurkjördæmis og gerði grein fyrir umsögn um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.
3) Þorláksbúð. Kl. 10:30
Á fundinn komu Eiður Guðnason, Ormar Þór Guðmundsson og Vilhjálmur Bjarnason og gerðu grein fyrir gögnum sem þeir hafa lagt fyrir nefndina ásamt því að svara spurningum nefndarmanna um málið.
4) Hljóðupptökur. Kl. 11:15
Á fundinn kom Ágúst Geir Ágústsson frá forsætisráðuneyti og gerði grein fyrir frumvarpsdrögum sem unnin hafa verið í ráðuneytinu eftir fund með nefndinni ásamt því að svara spurningum nefndarmanna.
5) Önnur mál. Kl. 11:55
Formaður lagði til að nefndin samþykkti að senda Ríkisendurskoðanda spurningar í tilefni af umræðu um skýrslu Ríkisendurskoðunar um úttekt á innleiðingu á fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins (Oracle) sem dregist hefur að skila til Alþingis. Nefndin fjallaði um málið. Ákveðið að formaður sendi spurningarnar til Ríkisendurskoðanda.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 12:13