21. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 27. nóvember 2014 kl. 09:00


Mættir:

Brynjar Níelsson (BN) 1. varaformaður, kl. 09:00
Birgitta Jónsdóttir (BirgJ) 2. varaformaður, kl. 09:05
Karl Garðarsson (KG), kl. 09:00
Pétur H. Blöndal (PHB), kl. 09:00
Sigrún Magnúsdóttir (SigrM), kl. 09:08
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 09:00

Ögmundur Jónasson og Brynhildur Pétursdóttir voru fjarverandi vegna annarra þingstarfa.
Valgerður Bjarnadóttir boðaði forföll.
Helgi Hjörvar var fjarverandi.

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 09:00
Frestað.

2) 342. mál - meðferð og framkvæmd ályktana Alþingis 2013 Kl. 09:00
Á fundinn kom Sigurður O. Guðleifsson frá forsætisráðuneyti og kynnti skýrsluna ásamt því að svara spurningum nefndarmanna.

3) Tilskipun 2009/72/EB er varðar innri raforkumarkað (þriðji orkupakkinn) Kl. 09:25
Brynjar Níelsson 1. varaformaður kynnti drög að áliti til utanríkismálanefndar vegna málsins. Samþykkt að afgreiða málið, allir með.

4) Önnur mál Kl. 09:35
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:35