33. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 10. mars 2016
kl. 09:00
Mættir:
Birgir Ármannsson (BÁ) 1. varaformaður, kl. 09:00Birgitta Jónsdóttir (BirgJ) 2. varaformaður, kl. 09:00
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 09:00
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:00
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:14
Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ), kl. 09:57
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 09:00
Ögmundur Jónasson og Helgi Hjörvar boðuðu forföll. Árni Páll Árnason var fjarverandi.
Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:55
Fundargerð 31. og 32. fundar voru samþykktar.
2) 112. mál - ríkisendurskoðandi og endurskoðun ríkisreikninga Kl. 09:00
Birgir Ármannsson 1. varaformaður og framsögumaður málsins reifaði drög að nefndaráliti og breytingartillögur og nefndin fjallaði um málið.
3) 156. mál - þjóðfáni Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið Kl. 09:58
Frestað að taka málið fyrir.
4) 57. mál - þingsköp Alþingis Kl. 09:58
Samþykkt að senda málið út til umsagnar. Samþykkt að Birgitta Jónsdóttir verði framsögumaður málsins.
5) Önnur mál Kl. 10:00
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:00