44. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 10. maí 2016 kl. 09:00


Mættir:

Ögmundur Jónasson (ÖJ) formaður, kl. 09:00
Birgir Ármannsson (BÁ) 1. varaformaður, kl. 09:00
Birgitta Jónsdóttir (BirgJ) 2. varaformaður, kl. 09:00
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 09:07
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:00
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:00
Helgi Hjörvar (HHj), kl. 09:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 09:00

Árni Páll Árnason boðaði forföll og Höskuldur Þórhallsson var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 43. fundar var samþykkt.

2) 112. mál - ríkisendurskoðandi og endurskoðun ríkisreikninga Kl. 09:05
Nefndin fjallaði um málið.

Tillaga framsögumanns, Birgis Ármannssonar 1. varaform. um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt. Allir með á áliti.

3) 653. mál - rannsóknarnefndir Kl. 10:00
Á fundinn kom Þórhallur Vilhjálmsson, forstöðumaður lagaskrifstofu Alþingis og svaraði spurningum nefndarmanna um málið.

4) Heiðarfjall í Langanesbyggð - barátta landeigenda við að fá mengandi úrgang frá ratsjárstöð bandaríska hersins fjarlægðan Kl. 09:26
Formaður gerði grein fyrir málinu og nefndin skoðar það milli funda.

5) Önnur mál Kl. 10:22
Gert var hlé á fundi kl. 9:33 til kl. 10:00.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:22