46. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 17. maí 2016 kl. 10:00


Mættir:

Ögmundur Jónasson (ÖJ) formaður, kl. 10:00
Birgitta Jónsdóttir (BirgJ) 2. varaformaður, kl. 10:00
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 10:00
Brynjar Níelsson (BN), kl. 10:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 10:00

Árni Páll Árnason, Birgir Ármannsson og Helgi Hjörvar boðuðu forföll. Elsa Lára Arnardóttir og Höskuldur Þórhallsson boðuðu forföll vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Kristel Finnbogad. Flygenring

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:00
Frestað.

2) 653. mál - rannsóknarnefndir Kl. 10:00
Formaður og framsögumaður málsins, Ögmundur Jónasson, gerði grein fyrir að drög að nefndaráliti hefðu verið send til nefndarmanna og lagði til að málið yrði tekið fyrir að nýju á næsta fundi nefndarinnar.

3) Heiðarfjall í Langanesbyggð - barátta landeigenda við að fá mengandi úrgang frá ratsjárstöð bandaríska hersins fjarlægðan Kl. 10:02
Nefndin fjallaði um málið.

4) Önnur mál Kl. 10:18
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:18