16. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 12. mars 2018 kl. 10:00
Opinn fundur


Mættir:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 10:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 10:00
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) 2. varaformaður, kl. 10:00
Brynjar Níelsson (BN), kl. 10:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 10:00
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 10:00
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 10:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 10:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 10:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 10:00

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2016 Kl. 10:00
Á fundinn komu Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis, Særún María Gunnarsdóttir skrifstofustjóri og Vilhelmína Ósk Ólafsdóttir forstöðumaður frumkvæðismála hjá umboðsmanni Alþingis. Tryggvi Gunnarsson kynnti skýrsluna og gestir svöruðu spurningum nefndarmanna.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:00

Upptaka af fundinum