9. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 2. nóvember 2018 kl. 10:00


Mættir:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 10:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 10:00
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) 2. varaformaður, kl. 10:00
Brynjar Níelsson (BN), kl. 10:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 10:00
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 10:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 10:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 10:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 10:00

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:00
Fundargerð 7. fundar var samþykkt.

2) 235. mál - umboðsmaður Alþingis Kl. 10:02
Á fundinn komu Þórhallur Vilhjálmsson frá lagaskrifstofu Alþingis og Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis og Vilhelmína Ósk Ólafsdóttir frá umboðsmanni Alþingis. Þórhallur kynnti frumvarpið og gestir svöruðu spurningum nefndarmanna.

Ákveðið að umsagnarfrestur málsins yrði rúmar tvær vikur.

3) Önnur mál Kl. 11:28
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:28