1. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 17. september 2018 kl. 09:30


Mættir:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:30
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) 2. varaformaður, kl. 09:30
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:30
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:30
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:30
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:30
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:30
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:30

Kolbeinn Óttarsson ProppE vék af fundi kl. 10:30 vegna einkaerinda. Þórunn Egilsdóttir vék af fundi vegna annars fundar kl. 10:45.

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Skýrsla starfshóps forsætisráðherra um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu Kl. 09:30
Á fundinn komu Jón Ólafsson formaður starfshóps forsætisráðherra um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu og Oddur Þorri Viðarsson frá forsætisráðuneytinu. Jón kynnti skýrsluna ásamt Oddi Þorra og þeir svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) Önnur mál Kl. 10:58
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:58