7. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 24. október 2018 kl. 09:00


Mættir:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:00
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) 2. varaformaður, kl. 09:23
Hildur Sverrisdóttir (HildS) fyrir Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:00
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:00
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP) fyrir Líneik Önnu Sævarsdóttur (LínS), kl. 09:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:00

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerðir 4. - 6. fundar voru samþykktar.

2) Tilskipun (ESB) 2015/1513 sem breytir tilskipun 98/70/EB um gæði bensíns og díseleldsneytis og tilskipun 2009/28/EB um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum Kl. 09:00
Á fundinn kom Margrét Einarsdóttir lektor við Háskólann í Reykjavík og fór yfir stjórnskipuleg álitaefni EES-mála og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1589 um ítarlegar reglur um beitingu 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (kerfisbinding) Kl. 09:00
Sjá umfjöllun við lið 2. á dagskrá.

4) 155. mál - breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands Kl. 10:14
Samþykkt að Kolbeinn Óttarsson Proppé verði framsögumaður málsins og að senda málið út til umsagnar með tveggja vikna fresti.

5) Önnur mál Kl. 10:17
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:17