29. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 18. febrúar 2019 kl. 09:30


Mættir:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:30
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) 2. varaformaður, kl. 09:30
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:30
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:30
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:38
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:30
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:43
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 10:00

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Frestað.

2) 493. mál - stjórnsýslulög Kl. 09:43
Á fundinn komu Eiríkur Jónsson lektor í Háskóla Íslands og Oddur Þorri Viðarsson frá forsætisráðuneyti. Eiríkur kynnti frumvarpið og þeir svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 292. mál - meðferð og framkvæmd ályktana Alþingis 2017 Kl. 09:30
Á fundinn kom Sif Guðjónsdóttir frá forsætisráðuneyti, kynnti skýrsluna og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 10:12
Nefndin ræddi frestun fyrirhugaðra opinna funda með umboðsmanni Alþingis og fulltrúum Seðlabanka Íslands vegna gjaldeyrismálsins, þ.e. stjórnsýslu Seðlabanka Íslands við framkvæmd gjaldeyriseftirlits.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:18