30. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 20. febrúar 2019 kl. 09:00


Mættir:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:00
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) 2. varaformaður, kl. 09:06
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:00

Kolbeinn Óttarsson Proppé var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis. Þórunn Egilsdóttir var fjarverandi vegna einkaerinda.

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Frestað.

2) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1999 um stjórnun orkusambandsins og loftslagsgerða, sem breytir reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (EB) 663/2009 og (EB) 715/2009, tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 94/22/EB, 98/70/EB, 2009/31/EB, 2009 Kl. 09:35
Á fundinn komu Hugi Ólafsson og Helga Barðardóttir frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og Bergþór Magnússon frá utanríkisráðuneytinu. Hugi og Bergþór kynntu málið og gestir svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Reglugerð (ESB) 2018/841 Evrópuþingsins og ráðsins um að fella losun og bindingu gróðurhúsalofttegunda frá landnotkun, breytingum á landnotkun og skógrækt inn í loftslags- og orkurammann fram til 2030 og um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins Kl. 09:25
Á fundinn komu Hugi Ólafsson og Helga Barðadóttir frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og Bergþór Magnússon frá utanríkisráðuneytinu. Hugi og Bergþór kynntu málið og gestir svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Reglugerð (ESB) 2018/842 Evrópuþingsins og ráðsins um bindandi, árlegan samdrátt aðildarríkjanna á losun gróðurhúsalofttegunda á árunum 2021 til 2030 sem framlag til loftslagsaðgerða til að uppfylla skuldbindingar samkvæmt Parísarsamningnum og um breyting Kl. 09:00
Á fundinn komu Hugi Ólafsson og Helga Barðadóttir frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og Bergþór Magnússon frá utanríkisráðuneytinu. Hugi og Bergþór kynntu málið og gestir svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) Önnur mál Kl. 09:43
Efni næstu funda rætt.

Jón Þór Ólafsson óskaði eftir að nefndin tæki á dagskrá fundar umfjöllun um upplýsingaskyldu þáv. félags- og jafnréttismálaráðherra nú félags- og barnamálaráðherra við Alþingi í tengslum við stjórnsýslu barnaverndarmála. Samþykkt að óska eftir athugun nefndasviðs á beiðninni.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:46