43. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 20. febrúar 2020 kl. 09:01


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 09:51
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 09:01
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:01
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:01
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:01
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:15
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:01

Hanna Katrín Friðriksson, Guðjón S. Brjánsson og Vilhjálmur Árnason boðuðu forföll.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:01
Frestað.

2) 436. mál - hollustuhættir og mengunarvarnir Kl. 09:02
Á fund nefndarinnar mættu Halla Einarsdóttir og Margrét Bragadóttir frá Umhverfisstofnun og Þórólfur Guðnason frá Embætti landlæknis. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Þá mættu á fund nefndarinnar Pétur Halldórsson frá Landvernd og Þorgerður María Þorbjarnardóttir frá Ungum umhverfissinnum. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Eftir að gestir höfðu vikið af fundi ræddi nefndin málið. Samþykkt var að óska eftir minnisblaði frá Matvælastofnun um eftirlit með gæludýraverslunum.

3) 262. mál - hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar Kl. 10:13
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með þriggja vikna fresti.

Nefndin samþykkti að Bergþór Ólason yrði framsögumaður málsins.

4) Önnur mál Kl. 10:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:15