56. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, þriðjudaginn 12. maí 2020 kl. 09:02


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 09:02
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 09:02
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:02
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:02
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:02
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:02
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:02
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:02
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:02
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:02

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:02
Fundargerð 55. fundar var samþykkt.

2) 436. mál - hollustuhættir og mengunarvarnir Kl. 09:04
Nefndin ræddi við Guðjón Bragason og Eygerði Margrétardóttur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Ara J. Sigurðsson, Hörð Þorsteinsson og Árnýju Sigurðardóttur frá Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða og Pétur Halldórsson frá ungum umhverfissinnum gegnum fjarfundarbúnað.

Eftir að gestir höfðu vikið af fundi ræddi nefndin málið.

3) 434. mál - fimm ára samgönguáætlun 2020-2024 Kl. 10:09
Frestað.

4) 435. mál - samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034 Kl. 10:09
Frestað.

5) 773. mál - leigubifreiðar Kl. 10:09
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með 1 viku fresti.

6) 776. mál - uppbygging og rekstur fráveitna Kl. 10:09
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með 1 viku fresti.

7) 611. mál - náttúruvernd Kl. 10:11
Framsögumaður málsins, Ari Trausti Guðmundsson, kynnti drög að nefndaráliti og ræddi nefndin málið.

8) Önnur mál Kl. 10:31
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:31