71. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 16. júní 2020 kl. 09:03


Mætt:

Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:03
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:03
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:03
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:03
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:07
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:03
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:03
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:03
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) fyrir Jón Gunnarsson (JónG), kl. 09:03

Bergþór Ólason boðaði forföll.

Líneik Anna Sævarsdóttir vék af fundi kl. 10:15.

Nefndarritari: Pétur Hrafn Hafstein

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 09:04
Fundargerðir 67., 68. og 69. fundar voru samþykktar.

2) 734. mál - svæðisbundin flutningsjöfnun Kl. 09:06
Framsögumaður málsins, Líneik Anna Sævarsdóttir, kynnti drög að nefndaráliti.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Allir viðstaddir nefndarmenn stóðu að nefndaráliti með breytingartillögu, Hanna Katrín Friðriksson og Karl Gauti Hjaltason með fyrirvara.

Bergþór Ólason skrifar undir álitið skv. heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.

3) 662. mál - samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir Kl. 09:36
Framsögumaður málsins, Ari Trausti Guðmundsson, kynnti drög að nefndaráliti.

Nefndin ræddi málið.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti meiri hluta standa Ari Trausti Guðmundsson, Hanna Katrín Friðriksson með fyrirvara, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Líneik Anna Sævarsdóttir, Vilhjálmum Árnason og Vilhjálmur Bjarnason.

Karl Gauti Hjaltason og Guðjón S. Brjánsson boðuðu sérálit.

4) 718. mál - loftslagsmál Kl. 10:05
Nefndin ræddi málið.

5) Önnur mál Kl. 10:21
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:39