72. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 18. júní 2020 kl. 09:10


Mætt:

Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:10
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:10
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:10
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:10
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:10
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:10
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:10
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:10
Vilhjálmur Bjarnason (VilB) fyrir Jón Gunnarsson (JónG), kl. 09:10

Bergþór Ólason boðaði forföll.

Nefndarritari: Pétur Hrafn Hafstein

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:11
Dagskrárlið frestað.

2) 718. mál - loftslagsmál Kl. 09:12
Kolbeinn Óttarsson Proppé, framsögumaður málsins, kynnti drög að nefndaráliti og breytingartillögu.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum, að Karli Gauta Hjaltasyni frátöldum.

Að nefndaráliti og breytingartillögu meiri hluta standa Ari Trausti Guðmundsson, Guðjón S. Brjánsson, Hanna Katrín Friðriksson, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Líneik Anna Sævarsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Vilhjálmur Bjarnason.

Björn Leví Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi lýsti sig samþykkan álitinu.

3) 720. mál - hollustuhættir og mengunarvarnir Kl. 09:19
Framsögumaður málsins, Ari Trausti Guðmundsson, kynnti drög að nefndaráliti með breytingartillögu.

Nefndin ræddi málið.

4) Önnur mál Kl. 09:35
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:41