1. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 8. október 2020 kl. 09:03


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 09:03
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:03
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:03
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:03
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:03
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:23
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:04
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:03
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:03

Jón Gunnarsson var fjarverandi.

Nefndarritari:
Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/631 frá 17. apríl 2019 um að setja staðla um koltvísýringslosun nýrra fólksbifreiða og nýrra léttra atvinnuökutækja og um niðurfellingu reglugerða (EB) nr. 443/2009 og (ESB) nr. 510/2011 Kl. 09:03
Nefndin ræddi málið og fjallaði um drög að áliti til utanríkismálanefndar. Samþykkt að fresta afgreiðslu málsins til næsta fundar.

2) Starfið framundan Kl. 09:20
Nefndin ræddi starfið framundan.

3) Önnur mál Kl. 09:36
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:37