4. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 22. október 2020 kl. 09:02


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 09:02
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:02
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:02
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:02
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:05
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:03
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:02
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:09
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:02

Jón Gunnarsson var fjarverandi.

Kolbeinn Óttarsson Proppé vék af fundi frá kl. 09:18 til 09:35.

Nefndarritari:
Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:03
Fundargerð 3. fundar samþykkt.

2) Staða samgönguframkvæmda Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar mættu Bergþóra Þorkelsdóttir, Guðmundur Valur Guðmundsson og Bryndís Friðriksdóttir frá Vegagerðinni. Gestir kynntu stöðu samgönguframkvæmda og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 208. mál - skipalög Kl. 10:04
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með 2 vikna fresti.

4) 209. mál - fjarskipti Kl. 10:05
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með 2 vikna fresti.

5) 32. mál - loftslagsmál Kl. 10:06
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með 2 vikna fresti.

6) Breyting á lögum um loftslagsmál nr. 70/2012 (reglugerð o.fl.) Kl. 10:07
Nefndin ræddi málið.

7) Önnur mál Kl. 10:16
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:17