28. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 21. janúar 2021 kl. 09:06


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 09:06
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 09:06
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:06
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:06
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:06
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:06
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:06
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:06
Sara Elísa Þórðardóttir (SEÞ), kl. 09:06

Vilhjálmur Árnason boðaði forföll.
Ari Trausti Guðmundsson vék af fundi kl. 09:57.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:06
Fundargerð 27. fundar var samþykkt.

2) Málefni Íslandspósts ohf. Kl. 09:11
Á fund nefndarinnar mættu Ólafur Stephensen frá Félagi atvinnurekenda og Hrólfur Andri Tómasson frá Dropp. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Þá mættu á fund nefndarinnar Guðbjörg Sigurðardóttir og Skúli Þór Gunnsteinsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 276. mál - náttúruvernd Kl. 09:06
Framsögumaður málsins, Ari Trausti Guðmundsson, kynnti drög að nefndaráliti.

4) Önnur mál Kl. 10:13
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:13