30. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 28. janúar 2021 kl. 09:04


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 09:04
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:04
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:04
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:04
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:04
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:04
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:04
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:04

Jón Gunnarsson boðaði forföll.
Kolbeinn Óttarsson Proppé vék af fundi kl. 09:56.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:04
Fundargerð 29. fundar var samþykkt.

2) Málefni Íslandspósts ohf. Kl. 09:05
kl. 09:05
Á fund nefndarinnar mættu Sigurður H. Helgason og Jón Gunnar Vilhelmsson frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gerðu þeir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

kl. 09:42
Nefndin ræddi málið.

3) 378. mál - sveitarstjórnarlög og tekjustofnar sveitarfélaga Kl. 09:41
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með 3 vikna fresti.

4) 115. mál - millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll Kl. 09:41
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með 2 vikna fresti.

5) 121. mál - heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld Kl. 09:41
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með 2 vikna fresti.

6) 123. mál - ráðstafanir til að lækka eldsneytiskostnað í millilandaflugi Kl. 09:41
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með 2 vikna fresti.

7) 125. mál - bygging hátæknisorpbrennslustöðvar Kl. 09:41
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með 2 vikna fresti.

8) Önnur mál Kl. 10:03
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:03