54. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 27. apríl 2021 kl. 10:37


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 10:37
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 10:53
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 10:37
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 10:37
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 10:37
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 10:37
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 10:37
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 10:37
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:37
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:37

Ari Trausti Guðmundsson vék af fundi kl. 11:30.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:37
Fundargerð 53. fundar var samþykkt.

2) 613. mál - loftferðir Kl. 10:37
Á fund nefndarinnar mætti Ragnhildur Helgadóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Gerði hún grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 506. mál - Fjarskiptastofa Kl. 11:16
Á fund nefndarinnar mættu Páll Gunnar Pálsson, Birgir Óli Einarsson og Eva Ómarsdóttir frá Samkeppniseftirlitinu. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Samhliða var fjallað um 4. dagskrárlið.

4) 534. mál - póstþjónusta og Byggðastofnun Kl. 11:16
Á fund nefndarinnar mættu Páll Gunnar Pálsson, Birgir Óli Einarsson og Eva Ómarsdóttir frá Samkeppniseftirlitinu. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Samhliða var fjallað um 3. dagskrárlið.

5) 9. mál - íslensk landshöfuðlén Kl. 11:38
Nefndin ræddi málið.

6) Önnur mál Kl. 11:57
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:57