71. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 1. júní 2021 kl. 10:39


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 10:39
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 10:39
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 10:39
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 10:39
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 10:39
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 10:39
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 10:39
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:39
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:39

Jón Gunnarsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:39
Fundargerð 70. fundar var samþykkt.

2) 712. mál - umhverfismat framkvæmda og áætlana Kl. 10:40
Á fund nefndarinnar mættu Kristín Huld Sigurðardóttir, Kristinn Magnússon og Agnes Stefánsdóttir frá Minjastofnun Íslands. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Þá mættu á fund nefndarinnar Guðrún Vaka Steingrímsdóttir og Hlynur Gauti Sigurðsson frá Bændasamtökum Íslands og Lárus M. K. Ólafsson frá Samtökum iðnaðarins. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Eftir að gestir höfðu vikið af fundi ræddi nefndin málið.

3) Önnur mál Kl. 11:39
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:39