73. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn föstudaginn 4. júní 2021 kl. 10:40


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 10:40
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 10:40
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 10:40
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 10:40
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 10:40
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 10:40
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 10:40
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:40
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:40

Jón Gunnarsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:40
Frestað.

2) 712. mál - umhverfismat framkvæmda og áætlana Kl. 10:40
Frestað.

3) 534. mál - póstþjónusta og Byggðastofnun Kl. 10:41
Framsögumaður málsins, Líneik Anna Sævarsdóttir, kynnti drög að nefndaráliti.

Nefndin ræddi málið.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti með breytingatillögu standa allir viðstaddir nefndarmenn. Þar af skrifa Guðjón S. Brjánsson og Karl Gauti Hjaltaston undir álitið með fyrirvara sem þeir gera grein fyrir í ræðu.
Jón Gunnarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

4) 708. mál - hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. Kl. 11:09
Framsögumaður málsins, Ari Trausti Guðmundsson, kynnti drög að nefndaráliti.

Nefndin ræddi málið.

5) Önnur mál Kl. 11:33
Nefndin ræddi starfið framundan.
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:37