28. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 30. janúar 2015
kl. 09:45
Mættir:
Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 09:45Haraldur Einarsson (HE) 2. varaformaður, kl. 09:45
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:45
Róbert Marshall (RM), kl. 09:45
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:45
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:45
Elín Hirst hafði boðuð forföll.
Birgir Ármannson og Katrín Júlíusdóttir voru fjarverandi.
Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson
Bókað:
1) Fundargerð. Kl. 11:35
Fundargerðir síðustu fjögurra funda voru samþykktar.
2) Frumvarp til laga um náttúruvernd. Kl. 09:55
Á fund nefndarinnar komu Jón Geir Pétursson og Sigríður Svana Helgadóttir frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Kynntu þau fyrir nefndinni vinnu ráðuneytisins við endurskoðun laga um náttúruvernd, nr. 60/2013.
3) Önnur mál Kl. 09:45
Nefndin ræddi dagskrá næstu vikna.
Fundi slitið kl. 11:35