1. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 17. september 2019
kl. 09:00
Mættir:
Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:00Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 1. varaformaður, kl. 09:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 09:00
Bergþór Ólason (BergÓ), kl. 09:00
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:00
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:00
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:00
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00
Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir
Bókað:
1) Kosning formanns og 1. og 2. varaformanns Kl. 09:00
Formaður lagði til að kosið yrði að nýju um formann og varaformenn nefndarinnar skv. 4. mgr. 14. gr. laga um þingsköp Alþingis. Allir viðstaddir nefndarmenn studdu beiðnina og var hún því rétt fram borin af meiri hluta nefndarmanna skv. 4. mgr. 14. gr. laga um þingsköp.
Formaður greindi frá því að fyrir lægi tillaga Karls Gauta Hjaltasonar um Bergþór Ólason í embætti formanns. Hanna Katrín Friðriksson gerði tillögu Björns Levís Gunnarssonar, áheyrnarfulltrúa, um að Karl Gauti Hjaltason yrði formaður nefndarinnar, að sinni.
Hlé var gert á fundi kl. 09:01-09:04.
Að loknu hléi var fundi slitið.
2) Önnur mál Kl. 09:05
Frestað.
Fundi slitið kl. 09:05